Fyrstu myndavélina fékk ég um 7 ára aldur, eldgamla Kodak vél sem með herkjum tókst að ná filmum í. Áhugi minn á íþróttamyndum kviknaði strax, en ég hafði líka mikinn hug á rollumyndum. Vélina notaði ég í 3-4 ár en hætti að mestu að taka myndir. Ég fékk að vísu litla Canon filmuvél í fermingargjöf en notaði hana lítið sem ekkert. Ástæðan var hversu dýrt það var að taka á filmur & um þetta leyti var stafræna tæknin að ryðja sér til rúms & sem tölvunörd hafði ég mun meiri áhuga á henni. Ég gerði mér líka grein fyrir að þá væri hver rammi ekki jafn dýrmætur.

Þess vegna tók ég nánast engar myndir á þessu tímabil en hef þó alltaf haft áhuga á ljósmyndum, safnaði öllum Manchester United myndum sem ég komst fyrir, var í starfsfræðslu hjá Myndsmiðjunni, skoðaði og pældi í myndum o.fl. Loks fékk ég litla stafræna Fujivél frá foreldrum mínum í útskriftargjöf og eftir að ég byrjaði að vinna sem blaðamaður á Austurglugganum fór ég bæði að læra meira á hana auk þess sem ég þurfti að nota hana. Smá saman hef ég bætt við mig dóti.

Ég er lausapenni í dag, mest fyrir DV og Austurgluggann. Ég hef skrifað fyrir Morgunblaðið, myndað fyrir Fréttablaðið á Austurlandi auk verkefna fyrir fleiri aðila á Austurlandi s.s. fotbolti.net, Fótboltasumarið 2007 & Mannlíf o.fl.

Zunderman's favorite photos from other Flickr members (2)

  • road to nowhere by Thorsten Werner
  • Emilía by Snerill
 

Contacts (120)

See more...

Groups (5050)

Show more... Show fewer...

Testimonials (0)

Zunderman doesn't have any testimonials yet.

Name:
Gunnar Gunnarsson
Joined:
March 2006
Hometown:
Fljótsdalur
Currently:
Egilsstaðir/Fljótsdalur, Ísland
I am:
Male and Single
Occupation:
Háskólanemi
Website:
Zundi