|
|
Vinir Tíbets' photostream |
Markmið félagsins er að efla menningarleg tengsl á milli Íslendinga og Tíbeta.
Friends of Tibet Society in Iceland.
info[at]tibet.is
10 STAÐREYNDIR UM TÍBET
1. Innrásin í Tíbet hófst 1949. Hernám Kína á Tíbet hefur kostað yfir 1.000.000 Tíbeta lífið, meira en 6.000 klaustur og hof hafa verið eyðilögð og þúsundir Tíbeta hafa verið fangelsaðir og pyntaðir.
2. Dalai Lama, pólitískur og trúarlegur leiðtogi landsins, flúði Tíbet árið 1959 til Dharamsala í Indlandi, og í kjölfarið fylgdu í kringum 100.000 Tíbetar og stofnuð var ríkisstjórn Tíbets í útlegð. Árið 1989 voru Dalai lama veitt friðarverðlaun Nóbels fyrir að víkja aldrei frá friðsamlegri stefnu sinni í frelsisbaráttu Tíbets.
3. Fyrir hernámið var Tíbet einveldi með fullgildri ríkisstjórn, með sinn eigin gjaldeyri, póstkerfi, tungumál, lagakerfi og menningu. Fyrir árið 1950, skrifaði Tíbet undir alþjóðlega samninga á sama hátt og önnur lönd heimsins. Ríkisstjórn Kína heldur því fram að Tíbet hafi alltaf verið hluti af Kína, en þrátt fyrir það ber hernámið á Tíbet einkenni ofbeldisfullrar nýlendustefnu, á borð við þær sem Kína hefur oft sakað aðrar stórþjóðir um að framfylgja.
4. Það sem kínverska ríkisstjórnin kallar “Sjálfstjórnarhéraðið Tíbet”, er ekki Tíbet og enn síður er sjálfstjórn þar. Það landsvæði sem Tíbetar álíta vera Tíbet, skipti ríkisstjórn Kína niður í ólík héröð og sýslur og er “Sjálfsstjórnarhéraðið Tíbet” eitt þeirra og nær aðeins yfir mið- og austurhluta Tíbets.
5. Grundvallar mannréttindi, svo sem málfrelsi, trúarfrelsi og samkomufrelsi eru verulega skert og handahófskenndar órökstuddar handtökur viðgangast. Í dag eru hundruðir pólitískra fanga í Tíbet og algengt er að þeir þurfi sífellt að þola pyntingar.
6. Ríkisstjórn Kína hefur í auknu mæli hvatt Han Kínverja (sem eru fjölmennastir í landinu) til að flytjast búferlum til Tíbet, og geta því fylgt bæði hærri laun og ýmis hlunnindi. Þessi stefna hefur ógnað mjög afkomu Tíbeta. Tíbetar eru á hraðri leið með að verða minnihlutahópur í “Sjálfsstjórnarhéraðinu Tíbet”. Árlega flýja að auki þúsundir Tíbeta úr landi með því að fara fótgangandi hina lífshættulegu leið yfir Himalayafjallgarðinn til að leita frelsis.
7. Hið sögulega landsvæði Tíbet var afar víðfeðmt, með landsvæði sem gróflega jafnast á við vestur-Evrópu að stærð. Í Tíbet eiga fimm af stærstu fljótum Asíu upptök sín, sem sjá í kringum 2 milljörðum manns fyrir vatni. Viðkvæmt lífríki Tíbets er í hættu vegna yfirgripsmiklar málmgrýtisvinnslu úr yfirborðsnámum í eigu Kínverja, vegna kjarnorkutilrauna þeirra í landi og gífurlegs skógarhöggs.
8. Ríkisstjórn Kína heldur því fram að tekist hafi að “þróa” Tíbet, en “þróunin” hefur að mestu gagnast aðfluttum Kínverjum, ekki Tíbetum. Mennta- og heilbrigðiskerfin hafa verið vanrækt en milljónum dollara hefur verið varið í uppbyggingu á samgöngum, byggingum og orkuverum sem þjónusta mikilfenglega hervæðingu landsins og hafa gert Tíbet að lögregluríki.
9. Ríkisstjórn Kína hefur lagt mikla áherslu á að selja erlendum fjárfestum aðgang að auðlindum Tíbets, og í því skyni hert stjórnun sína á svæðinu. Hefur stjórnin sett upp herferðir á borð við þá sem þeir kalla “Go West” til að laða að erlenda fjárfesta. Erlendar fjárfestingar á kínverskum fyrirtækum og þau verkefni sem arðræna Tíbet verða aðeins til þess að réttlæta nýlendustefnuna í Tíbet.
10. Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðasamfélagið hafa gert afar lítið til þess að sporna við ólöglegu hernámi Kínverja á Tíbet. Kínverskur markaður er gífurlega stór og býr yfir ódýru vinnuafli, og samstarfs- og viðskiptaaðilar hafa það mikil áhrif að stjórnsýsluaðilar flestra landa heimsins eru tregir til að leggja nokkuð markvert til málanna. Síðan flest vesturlönd tóku upp svokallað “uppbyggilegt samband” við Kína á tíunda áratugnum, hefur ástandið í mannréttindamálum Tíbeta aðeins versnað.
Vinir Tíbets' favorite photos from other Flickr members (68)
Contacts (14)
Groups (3)
- Imagine Peace 8,149 photos, 1,616 members
- Free Tibet !!! 6,117 photos, 1,482 members
- Candles for Tibet 693 photos, 1,645 members
Testimonials (0)
Vinir Tíbets doesn't have any testimonials yet.
- Name:
- Friends of Tibet Iceland
- Joined:
- August 2008
- Hometown:
- Reykjavík
- Currently:
- Iceland
- Website:
- tibet.blog.is











