About Mæður með augum kvenna
ERTU KONA, 16 ÁRA EÐA ELDRI OG BÚSETT Í REYKJAVÍK?
MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ TAKA ÞÁTT Í SKEMMTILEGU FJÖLÞJÓÐLEGU LJÓSMYNDAVERKEFNI?
Reykjavíkurborg tekur þátt í spennandi ljósmyndaverkefni sem kallast Wilberforce Women. Markmiðið með verkefninu er að færa konur af ólíkum uppruna nær hver annarri með hjálp ljósmyndarinnar.
Wilberforce Women hófst í Hull í Bretlandi árið 2007 með ljósmyndaverkefni Hull og Freetown í Sierra Leone í vestur Afríku undir einkunnarorðunum Pride, Freedom, Belief and Change. Verkefnið tókst afar vel og er enn að vaxa með auknu samstarfi borganna tveggja.
Nú býður Hull systraborgum sínum Reykjavík og Szczecin í Póllandi ásamt Freetown í Sierra Leone til samstarfs. Þemað að þessu sinni er MÆÐUR þar sem konur senda inn myndir af þeirra sýn, túlkun eða upplifun á hugtakinu móðir. Ef þú ert ekki móðir sjálf - hvernig er móðir í þínum huga? Sé móðir þín ekki lengur á lífi - hvað minnir þig á hana? Er það t.d. uppáhaldsstóllinn hennar eða garðurinn hennar? Eins gætir þú myndað móðureðlið í náttúrunni.
í júlí 2009 verður sett upp sýning á völdum myndum í Hull í Bretlandi og er áætlað að sýningin verði einnig sett upp í Reykjavík, Szczecin og Freetown.
ÞÁTTTAKENDUR SENDI VINSAMLEGAST INN TVÆR MYNDIR Í LIT EÐA SVARTHVÍTU, Á STAFRÆNU FORMI Í LÁGRI UPPLAUSN (72DPI) Á NETFANGIÐ: maedurmedaugumkvenna@yahoo.com.
MEÐ MYNDINNI ÞARF AÐ FYLGJA LÝSING Á ÞVÍ HVERNIG LJÓSMYNDIN TENGIST ÞEMANU ,,MÓÐIR“ OG FULLT NAFN ÞÁTTTAKANDA.
SKILAFRESTUR ER TIL 30. MARS 2009.
Nánari upplýsingar veitir Guðríður Inga Ingólfsdóttir á Höfuðborgarstofu, gurry@visitreykjavik.is
Einnig má finna nánari upplýsingar um verkefnið hér: www.wilberforcewomen.com
|
Additional Information
This is a public group.
-
Members can post 2 things to the pool.
- Accepted media types:
- Accepted content types:
- Photos
- Screenshots
- Illustration/Art
- Accepted safety levels:
|